Herend Queen Victoria
Vintage postulínsskál með loki og sítrónuhaldi, Herend Queen Victoria
Vintage postulínsskál með loki og sítrónuhaldi, Herend Queen Victoria
Staðsetning vöru: Opið hús - Dúfnahólar 2, 111 Reykjavík
Fjöldi til: 1 stk
Sendingarmáti - Upplýsingar
Sendingarmáti - Upplýsingar
Við sendum vörur út um allt land í gegnum Dropp og Póstinn, þú velur í kaupferlinu.
Verð er skv. verðskrá sendingaraðila:
Skilaréttur
Skilaréttur
Lítil handmáluð og handmótuð postulínsskál með loki frá hinni þekktu ungversku postulínsverksmiðju Herend, stofnuð árið 1826. Skálin er í hinu sígilda Queen Victoria-munstri með litríkum fiðrildum, blómum og gylltum skreytingum. Á lokinu er handmótuð sítróna sem er handfangið. Allir munir í þessari línu eru handmálaðir og handmótaðir og því eru minni hlutirnir oft dýrari en stærri hlutirnir.
Queen Victoria-munstrið er kennt við Viktoríu Bretadrottningu því hún keypti matarstell í þessu munstri frá Herend á heimssýningunni í London árið 1851
Skálin er frá fyrri hluta 20. aldar, en nákvæmur framleiðsluárgangur er óstaðfestur.
Lengd með handföngum: 13 cm
Breidd: 9 cm
Hæð með loki: 10 cm
Ef þér finnst verðið of hátt ýttu þá á gefa tilboð hnappinn í kaupferlinu og gefðu okkur þitt tilboð.
Share
