Vintage
Vintage blekbytta með pennahvíld – Art Deco-stíll, Vintage
Vintage blekbytta með pennahvíld – Art Deco-stíll, Vintage
Staðsetning vöru: Opið hús - Kristnibraut 8, 113 Reykjavík
Fjöldi til: 1 stk
Sendingarmáti - Upplýsingar
Sendingarmáti - Upplýsingar
Við sendum vörur út um allt land í gegnum Dropp og Póstinn, þú velur í kaupferlinu.
Verð er skv. verðskrá sendingaraðila:
Skilaréttur
Skilaréttur
Klassískt vintage skrifborðssett í Art Deco-stíl, líklega frá fyrri hluta 20. aldar. Settið samanstendur af blekbyttu úr þykku, glæru gleri með málmloki og tveimur bogadregnum pennahvílum á svörtum, gljáandi grunni. Grunnurinn er úr svörtum marmara.
Blekbyttan er ætluð fyrir blek sem notað var með dýfipennum og pennahvíldirnar eru til þess að leggja pennann frá sér á milli þess sem skrifað er. Málmhlutarnir eru gylltir og hafa fengið fallega patínu með aldrinum.
Skemmtilegur gamall skrifborðsgripur sem hentar vel sem skraut á skrifborð eða fyrir safnara gamalla ritfanga.
Sprunga er í marmaranum og flís hefur brotnað úr frambrúninni. Tekið er mið af þessu í verðinu.
Mál:
Grunnur og pennahvílur
Lengd: 11 cm
Breidd: 12.3 cm
Hæð: 2.2 cm fætur og marmari, 5 cm með öllu
Blekbytta
Lengd: 5 cm
Breidd: 5 cm
Hæð: 6.5 cm
Ef þér finnst verðið of hátt ýttu þá á gefa tilboð hnappinn í kaupferlinu og gefðu okkur þitt tilboð.
Share
