Öll opin heimili í gangi - Sala innbúa

Hér fyrir neðan getur þú séð öll opin heimili í gangi þar sem Gallerí Fló er með innbú í umboðssölu. Ef þú vilt tryggja þér einhverja muni þá greiðir þú fyrir þá en við endurgreiðum þér við afhendingu ef þeir uppfylla ekki þínar væntingar. Hafðu í huga að fyrir þær vörur sem við náum að birta verð á þá eru þau verðhugmyndir og hvetjum þig til þess að gefa tilboð með því verði sem þér finnst sanngjarnt, ekkert tilboð er of dónalegt.

Rafræn opin hús virka þannig að um leið og við birtum myndbönd og/eða myndir af innbúum þá má byrja að versla (birtasts hérna og á samfélagsmiðlum okkar). Allt sem þú sérð í myndböndunum og á myndum er til sölu, allt á veggjum, gólfum, loftum, hvað sem þú sérð. Ef þú sérð eitthvað sem þér líkar í myndböndum eða myndum af innbúi hafðu þá samband við okkur í spjallinu eða í gengum info@galleriflo.is og við gefum þér verðhugmynd, eða þú gefur okkur þína verðhugmynd.

Físísk opin hús eru alltaf kynnt í gegnum Facebook viðburð ásamt því að þú sérð það þegar þú ferð inn í opið hús á vefsíðu okkar.

Allur pakkinn: þegar við auglýsum allann pakkann þá er bæði innbú og fasteignin sjálf til sölu og er þá samstarf á milli okkar og fasteignasalans.

Tilgangur opinna húsa er að spara kostnað vegna endurtekinna flutninga og að lágmarka kolefnisspor því er tækifæri fyrir þig að gera góð kaup á lægra verði en þegar umræddar vörur koma síðar í almenna sölu hjá okkur.

Eins og alltaf þá eru engin tilboð frá þér óviðeigandi.

Reykjavík

Dúfnahólar - Allur pakkinn með Remax

Rafrænt opið hús í gangi - má versla núna

Við kynnum samstarf Gallerí Fló og Remax þar sem fasteignin og allt innbúið er til sölu og mun Remax sjá um sölu fasteignarinnar

Físískt Opið hús: Miðvikudaginn 7. október 2026 kl. 18:00-19:00

Upplýsingar um fasteignina: Sjá hérna

Fallegt innbú með bland af antík og klassískum nútíma húsgögnum og mikið af heimilismunum, fatnaði og margt fleira.

Skoða

Reykjavík

Kristnibraut 8 - Allur pakkinn með Húsaskjól

Rafrænt opið hús í gangi - má versla núna

Við kynnum samstarf Gallerí Fló og Húsaskjóls þar sem fasteignin og allt innbúið er til sölu og mun Húsaskjól sjá um sölu fasteignarinnar

Físískt Opið hús: Hafðu samband við okkur ef þú vilt koma að skoða í s. 6913500

Upplýsingar um fasteignina: KEMUR VON BRÁÐAR

Fallegt innbú með bland af antík og  tímalausum húsgögnum og heimilismunum. Allt sem þú sérð á þessari forsíðumynd er til sölu.

Skoða

Reykjavík 105

Bólstaðarhlíð 41, bjalla 72

Rafrænt opið hús í gangi - má versla núna
Fýsískt opið hús: Mánudaginn 19. október kl. 18-19 Ef þú vilt koma á staðinn að skoða vörurnar mánudaginn eða sækja húsgögn


Við kynnum fyrir ykkur fallegt vintage - retro innbú sem samanstendur af uppruna og áhugamáli eigenda þess. Falleg tekk húsgögn, skrautmunir og listaverk frá mið-austulöndunum í bland við klassískra og þjóðlegra íslenskra muna og hesta áhugamáli afa fjölskyldunnar.

Skoða Bólstaðarhlíð